Wednesday, September 18, 2024

Iceland Besta Deildin 2024 8 Goals Thriller Breiðabliks HK


22e journee
15 septembre 2024

ICE
Iceland.2024.Bre.HK.ICE.twb22.mp4
6.54 GB https://1fichier.com/?tqmtdyyj33ftp9spt27i

Breiðablik vann HK á Kópavogsvelli í dag í markaleik. 5-3 fór leikurinn Blikum í vil. Viktor Karl kom Blikum yfir snemma leiks en á þriggja mínútna kafla tóku HK-ingar forystuna með mörkum frá Eið Gauta og Arnþóri Atla. HK leiddi 2-1 í hálfleik. Davíð Ingvars gerði sig sekan um skelfileg mistök í öðru marki HK. Breiðablik var ekki búið að syngja sitt síðasta en Kristófer Ingi jafnaði leikinn fyrir þá grænklæddu þegar aðeins 9 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum. Nokkrum mínútum síðar bætti Aron Bjarna við og Breiðablik búnir að snúa leiknum við á fjórum mínútum. Tveimur mínútum eftir það kom Höskuldur Gunnalugsson, fyrirliði Blika, Breiðablik yfir í 4-2 með skalla eftir hornspyrnu frá Kristni Jónssyni. Aron Bjarna skoraði síðan sitt annað mark í leiknum eftir glæsilegan undirbúning Davíðs Ingvarssonar. Atli Þór Jónsson elskar að skora á Kópavogsvelli líkt og í 1. umferð deildarinnar í fyrra en hann gerði það í dag líka. Hann minnkaði muninn í 5-3 en það var of lítið of seint. Blikar fara núna aftur á toppinn í bili, þremur stigum á eftir Víkingum sem eiga leik til góða. HK-ingar sitja í 10. sæti, tveimur stigum frá Vestra í 11. sæti og þremur stigum frá Fylki í neðsta sætinu. Fylkir og Víkingur eigast við á morgun. Hægt er að sjá töfluna í heild sinni hér að neðan.



















No comments:

Post a Comment

NO LINKS ALLOWED